Fotbolti.net
06.07.26 - 10:30
Ívar Björgvinsson

Besti mögulegi tíminn fyrir Víkinga

Besti mögulegi tíminn fyrir Víkinga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslandsmeistararnir taka á móti ungversku meisturunum frá Györ á morgun í fyrstu umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Um er að ræða gríðarlega mikilvægt einvígi þar sem sigur fer með liðið í 2. umferðina en tap þýðir erfið leið að Sambandsdeildinni. Ungverjinn Sándor Matus, fyrrum markmaður í efstu deild hér á landi og núverandi markmannsþjálfari HK, ræddi við Fótbolta.net í aðdraganda leiksins.

„Margir leikmenn liðsins eru orðaðir við stærri lið og hópurinn í heild sinni mjög óskýr ennþá. Þetta er frábær, ef ekki besti, tíminn til þess að mæta liðinu fyrir heita Víkinga. Það er enginn risa leikmaður eða frægt nafn í Györ, Gylfi Þór Sigurðsson verður langstærsta nafnið á vellinum en stærsta nafn ungversku deildarinnar er líklega Naby Keita, sem leikur með Ferencváros, sem vann Meistaradeildina og ensku úrvalsdeildina með Liverpool á sínum tíma,’’ segir Sándor.

Deildin er ekki hafin í Ungverjalandi og því er Györ liðið að öllum líkindum ekki í eins góðu leikformi og sjóðandi heitir Víkingar. Einnig hafa verið miklar róteringar á þjálfarateymi liðsins síðastliðna mánuði eftir að tímabilinu lauk. Þjálfari liðsins fór til Ferencváros, helsta keppinauts Györ við litla hrifningu stuðningsmanna.

„Györ er í svakalegum breytingum en þjálfari liðsins skrifaði undir hjá stórliðinu Ferencváros eftir að tímabilið kláraðist í vor við litla hrifningu Györ. Hann vann mikið afrek með því að vinna deildina í ár eftir mikla einokun frá Ferencváros seinustu ár. Þjálfarateymið er gjörbreytt frá því sem það var í lok tímabils í vor.'’ 

Alþingiskosningar hafa haft áhrif á ungverskan fótbolta.

„Fyrir tíu árum síðan hefðu bestu liðin á Íslandi ekki endilega plummað sig í deildinni en í dag geta þessi bestu lið alveg keppt. Það hefur verið mikið dropp í fjármunum í íþróttir í landinu, og þá sérstaklega fótbolta, eftir Alþingiskosningarnar í vor þar sem Viktor Orbán, þáverandi forsætisráðherra, tapaði kjörinu eftir að hafa verið við stjórnvölinn í 16 ár. Robbie Keane, þáverandi þjálfari Ferencváros, fór burt fljótlega eftir það svo eitthvað sé nefnt,’’ sagði Sándor Matus í samtali við Fótbolta.net.

Fréttin er hluti af pistli sem birtist á áskriftarvef Fótbolta.net þann 5. júlí en hægt er að skrá sig til leiks og fá fría prufuviku með því að smella á pistilinn að neðan.

Víkingur aldrei verið sterkari samkvæmt landsliðsþjálfaranum - Ungverskir miðlar fjalla um einvígið
TENGT EFNI

Víkingur aldrei verið sterkari samkvæmt landsliðsþjálfaranum - Ungverskir miðlar fjalla um einvígið


Smelltu hér til að skrá þig í áskrfit - fyrsta vikan er frí
Sándor í markinu hjá KA á sínum tíma.

Sándor í markinu hjá KA á sínum tíma.

Canon

Mynd: Reynir Pálsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.