„Hver einasta taktíska breyting Tuchel hefur virkað“

Thomas Tuchel fær lof í enskum fjölmiðlum.

Mynd: EPA

Dan Burn kom öflugur inn.

„Þú verður að geta aðlagast, spila mismunandi leikstíl og það kemur Thomas Tuchel með að borðinu,“ segir Stephen Warnock, sérfræðingur BBC.
Það eru ekki bara hetjuleg framganga leikmanna enska liðsins sem fær hrós í ensku pressunni eftir 3-2 sigurinn á Mexíkó heldur einnig Þjóðverjinn með stjórnartaumana.
'Tommi taktík', eins og sumir Íslendingar kalla Tuchel, þurfti að bregðast við því þegar Jarell Quansah fékk rautt spjald í upphafi seinni hálfleiks. John Stones kom þá inn og fór í miðvörðinn á meðan Ezri Konsa færðist í hægri bakvörð.

TENGT EFNI
Sjáðu HM mörkin: Allt það helsta úr sigri Englands í nótt
„Tuchel er með góðan skilning á því hvenær þarf að bregðast við. Taktískar breytingar hans hafa virkað í öllum leikjunum. Þessi leikur gegn Mexíkó var annar plús í kladdann fyrir hann."
Í vatnspásu seinni hálfleiks, þegar enska liðið var orðið mjög þreytt, breytti Tuchel yfir í fimm manna vörn. Djed Spence kom inn í bakvörðinn í stað Nico O’Reilly og aukamaður var settur í varnarlínuna þegar Dan Burn kom inn sem varamaður fyrir Elliot Anderson.
„Þetta var meistaraverk frá Tuchel. Burn kom hrikalega öflugur inn og skallaði alla bolta frá. Stones og Marc Guéhi voru framúrskarandi einnig og Jordan Pickford hrikalega öflugur í markinu fyrir aftan þá. Tuchel sýndi klókindi og ákvarðanatökur hans hittu allar í mark."