Yfirgefur Grikkland eftir sex mánaða dvöl - „Get ekki sagst vera pollrólegur“
Auglýsing

Við undirskrift hjá Larissa í janúar.

Mynd: AEL Larissa Novibet

Davíð á 15 A-landsleiki fyrir Íslands og skorað eitt mark.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við undirskrift hjá Larissa í janúar.

Mynd: AEL Larissa Novibet
Davíð Kristján Ólafsson er samningslaus eftir sex mánaða dvöl hjá Larissa í Grikklandi. Hann gekk til liðs við gríska félagið í janúar frá Cracovia og samdi út tímabilið.
Davíð gerði sér leið á skrifstofu Fótbolta.net fyrr í dag og ræddi um næstu skref.

„Ég er að bíða eftir því að sjá hvað kemur. Ég er bara spenntur, það er eitthvað að gerast í kringum mig. En ég er meðvitaður um að það gæti tekið aðeins lengri tíma út af HM. Ég reyni að halda í jákvæðnina og þolinmæðina.“
„Ég ætla ekki að segja að ég sé pollrólegur en ég er með umboðsmann sem er með mér í þessu. Ég veit að ég er 31 árs og það tekur tíma, ég er ekki 22 ára gaur. Þetta tekur tíma og vonandi kemur eitthvað tilboð sem ég er sáttur við.“
Pólland draumaáfangastaður
Davíð segist hafa liðið vel í Póllandi en hann lék með Cracovia í tvö ár ásamt því að eiga pólska kærustu.
„Mér leið rosalega vel í Póllandi og er landið sem mér leið hvað best í á mínum ferli. Það væri kjörið fyrir mig að komast þangað,“ segir Davíð.
Nánar er rætt við Davíð í spilaranum hér að ofan.