16.07.06 - 17:33
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Aimo Diana til Palermo (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Palermo hafa gengið frá kaupunum á hægri kantmanninum Aimo Stefano Diana frá Sampdoria. Diana, sem hefur spilað 13 landsleiki, var ekki í HM-hópi Ítala í sumar vegna meiðsla.
Hann mun án efa styrkja félagið sem mun taka þátt í Meistaradeildinni næsta vetur þrátt fyrir að hafa lent í 8. sæti á síðasta tímabili, en þeir koma í stað Fiorentina sem voru felldir niður í Serie B ásamt Juventus og Lazio.
,,Ég vildi breyta um umhverfi og reyna að vinna sæti mitt í landsliðinu aftur. Palermo er á hraðri uppleið og þú getur virkilega bætt þig hér," sagði Diana.
Sem hluti af samningnum fá Sampa 50% í varnarmanninum Christian Terlizzi og miðjumanninum Massimo Bonanni en þeir eru í eigu Palermo.