16.07.07 - 06:00
Hörður Snævar Jónsson
Ewerthon til Stuttgart á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Vfb Stuttgart hefur fengið Ewerthon á láni frá Real Zaragoza. Ewerthon er ekki ókunnugur þýsku deildinni því að hann lék með Borussia Dortmund árin 2001 til 2005.
Hann mun koma saman við leikmannahóp Stuttgart í dag þar sem liðið er í æfingarbúðum í Austurríki.
Ewerthon er þriðji Brasilíu maðurinn sem kemur í þýsku deildina á stuttum tíma. Ailton gekk til liðs við Duisburg á föstudag og á laugardag gekk Carlos Alberto til liðs við Werder Bremen fyrir rúmar 8 milljónir evra.