16.07.07 - 10:45
Magnús Már Einarsson
Eyþór Atli Einarsson í Njarðvík (Staðfest)

Eyþór Atli í baráttu við Halldór Hilmisson leikmann Fylkis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyþór Atli í baráttu við Halldór Hilmisson leikmann Fylkis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njarðvík úr fyrstu deildinni hefur fengið miðjumanninn Eyþór Atla Einarsson að láni frá Grindavík. Við greindum frá því á dögunum að Eyþór væri á förum frá Grindavík og nú hafa Njarðvíkingar fengið hann á láni.
Eyþór er uppalinn hjá Grindavík en hann hefur leikið tvo leiki í fyrstu deildinni í sumar og einn leik í VISA-bikarnum.
Þessi 23 ára gamli leikmaður lék sjö leiki í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð og sautján leiki árið 2005 en hann hefur skorað eitt mark í 55 leikjum í efstu deild.
Eyþór Atli hefur þegar fengið leikheimild með Njarðvíkingum og getur hann því leikið með þeim gegn gegn Stjörnunni í fyrstu deildinni í kvöld.