16.07.16 - 19:27
Elvar Geir Magnússon
Kristján Guðmunds: Megum fara að skjóta á markið
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
<i>„Það voru engin alvöru færi í leiknum,\"</i> sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Leiknis, eftir markalaust jafntefli í Keflavík í dag. Bæði lið eru í baráttu um að komast upp í Pepsi-deildina.
„Fyrirfram erum við alveg sáttir við að taka stigið, það er alveg ljóst. Við erum að spila við mjög sterkt lið sem hefur einn besta sóknarmann deildarinnar innan sinna raða. Það er gott að við höldum áfram að verjast svona vel en við megum fara að skjóta á markið.\"
Markaskorun hefur verið vandamál Leiknis í sumar.
„Á meðan við spilum svona góða vörn gengur þetta upp. Við vorum ekki nægilega góðir í að skapa okkur færi í dag.\"
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan en þar talar Kristján um félagaskiptagluggann og fleira.