Badu: Þeir svöruðu með alvöru frammistöðu


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vestri tók á móti Qarabag í fyrsta heimaleiks liðsins í Evrópukeppni. Leikurinn endaði 3-0 fyrir Qarabag og einvígið sjálft fór 6-0, svo ljóst er að Evrópudeildar ævintýri Vestra er á enda en þá tekur Sambandsdeildin við.
Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Daniel Badu þjálfara Vestra eftir leikinn.
„Þetta var mjög erfitt og ég leyfði mér að dreyma um að við myndum ná að kraftaverki í dag, en við þurfum bara að taka því að betra liðið vann. Qarabag var betra liðið í báðum leikjunum og ég vil óska Qarabag til hamingju". Sagði Daniel Badu þjálfari Vestra eftir leikinn gegn Qarabag.
Í leiknum í kvöld voru Vestri töluvert hættulegri fram á við en þeir voru í fyrri leik liðanna, ert þú sammála af því?
„Já, ég þarf að horfa á leikinn aftur. Við fengum fleiri tækifæri til að gera eitthvað með boltann og skora mark. Við vissum einnig að það væri erfiðara fyrir þá að spila á Íslandi og á gervigrasi, en við nýttum það ekki alveg nógu vel".
Það var áhugavert fyrir leik þegar byrjunarlið liðanna komu út að Badu verði 7 breytingar á sínu liði. Hver var pælingin með breytingunum og hvernig fannst þér menn sem komu inn í liðið standa sig?
„Það er bara ekki hægt að spila með sömu leikmenn og spiluðu gegn Grindavík, Qarabag og Fylki í þessum leik líka. Ég vissi að við erum með góðan hóp og sumir eru ekki búnir að sýna það á tímabilinu, en þeir sem hafa ekki spilað mikið voru mjög góðir".
Á 63 mínútu fór Elmar Atli fyrirliði Vestra af velli og það var áhugavert að hann gaf hinum 17 ára gamla Alberti Inga Jóhannssyni fyrirliðabandið.
„Það var ekki planað fyrir leik, Elmar gaf honum bara bandið. Mér fannst Albert spila mjög vel í vörninni í dag. Ég var mikið spurður út í hvers vegna ég setti hann í miðvörð en hann og einnig Marínó Steinar svöruðu þessum spurningum með alvöru frammstöðum".
Félagsskiptamarkaðurinn opnaði fyrr í dag og Badu var spurður hvort Vestri myndu styrkja sinn hóp.
„Það verða smá breytingar á hópnum, við erum með góðan hóp en það er mikið af leikjum og stutt á milli leikja svo það er gott að fá leikmenn inn".
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.



