Fotbolti.net
16.08.06 - 12:22
Hafliði Breiðfjörð

Robert Green til West Ham (Staðfest)

Robert Green.

Robert Green.

Canon

Mynd: Getty Images

West Ham United hafa gengið frá kaupum á markverðinum robert Green frá Norwich en hann gerði fjögurra ára samning við félagið í morgun. Green sem hefur leikið einn leik með enska landsliðinu gæti kostað allt að 2 milljónir punda þegar allt er tekið með.
Hann er 26 ára gamall og hefur átt fast sæti í leikmannahóp Englands. Hann missti af Heimsmeistaramótinu í sumar vegna slæmra nárameiðsla sem hann hlaut í B-landsleik gegn Hvíta Rússlandi tveimur vikum fyrir mótið.

,,Eftir endurhæfingu í sumar er hann nú kominn aftur til æfinga og mun fljótlega geta farið að berjast um byrjunarliðs sætið í liðinu við Roy Carroll og Jimmy walker," sagði á vefsíðu West Ham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.