Fotbolti.net
16.08.20 - 20:17
Anton Freyr Jónsson

Birnir Snær: Náum loksins að tengja tvo sigra saman

Auglýsing
Birnir Snær Ingason, leikmaður HK.

Birnir Snær Ingason, leikmaður HK.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK og Fjölnir mættust í Kórnum fyrr í dag og endaði leikurinn með 3-1 sigri HK. Birnir Snær Ingason fór á kostum í liði HK í dag þegar hann skoraði tvö mörk HK í Kórnum í dag.

Birnir Snær var eðlilega ánægður að leikslokum.
„Æðisleg, við unnum síðasta leik og náum loksins að tengja tvo sigra saman. Þetta var orðið stressandi þarna lokin þegar þeir minnkuðu muninn í 2-1 en gott að fá þriðja markið og anda léttar og fá þessi þrjú stig."

Birnir Snær Ingason spilaði með Fjölni og var hann spurður hvernig hafi verið að mæta sínum gömlu félögum?

„Það var skrítið en mjög gaman. Flott lið en það hefur gengið brösulega hjá þeim á þessum tímabili."

Hvernig lagði Brynjar leikinn upp í dag?

„Bara spila okkar leik, aðeins að halda boltanum, við vorum með nokkur uppspil sem við vorum búnir að stilla upp sem heppnaðist mjög vel og fengum fullt af færum, áttum að vera búnir að vera búnir að skora fleiri mörk en fengum þrjú stigin."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.