Fotbolti.net
09.07.26 - 22:37
Helgi Inguson

Anton Ingi: Mér hefur sjaldan liðið betur eftir fótboltaleik

Auglýsing
Anton Ingi segist hafa farið vel yfir sóknarleik liðsins í pásunni

Anton Ingi segist hafa farið vel yfir sóknarleik liðsins í pásunni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Mér hefur sjaldan liðið betur eftir fótboltaleik, toppframmistaða og frábær og verðskulduð þrjú stig," sagði Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, eftir leik liðsins í 10. umferð Bestu deildar kvenna. Fram tók á móti Breiðabliki á Lambhagavellinum og bar sigur úr býtum, 3-2.
Lestu um leikinn: Fram 3 - 2 Breiðablik
„Þetta var kaflaskipt. Við ætluðum okkur að skora í þessum leik og náðum að skora snemma í fyrri hálfleik. Svolítið kurteisar á okkur eigin heimavelli. Við ræddum það í hálfleik að við hefðum þurft að klukka betur, pressa grimmar ef við ætlum að vinna Blika. Og við svöruðum því í seinni háfleik. Þá bara náum við að klukka, náum að keyra, erum grimmar, pressum sem lið, spilum sem lið og uppskerum þessi tvö mörk og sigurinn," sagði Anton.

Fram var betri aðilinn í seinni hálfleik, hver voru skilaboðin í hálfleik?

„Það var bara að fara út á völl og njóta þess að spila. Koma með kraft og sýna fólkinu hvað við erum öflugar, við höfum gert margt vel í sumar og margt sem við höfum þurft að laga. Við unnum vel í pásunni, æfðum og æfðum og ekkert vel. Þær svöruðu því vel og voru ekkert að kvarta. Þær leggja bara hart að sér og eru tilbúnar að berjast í hverjum einasta leik og ætla að halda sér uppi."

Taylor Hamlett átti frábæran leik, skoraði tvö mörk og ógnaði marki Breiðabliks í hvert skipti sem hún fékk boltann.

„Hún var mjög góð. Mikill kraftur og mikill drífandi í henni. Hún er okkur mjög mikilvæg," sagði Anton um frammistöðu hennar.

Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum fyrir ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.