Guðni Eiríks: Það truflar okkur ekki neitt

Guðni Eiríksson, þjálfari FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Eiríksson, þjálfari FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Gríðarlega sáttur, eðlilega, eftir góðan sigur“ sagði Guðni Eiríksson, þjálfari FH, eftir 7-3 sigur síns liðs í Kaplakrika í dag.
„Ánægður með liðsframmistöðu FH liðsins, mér fannst leikurinn frábær hjá FH liðinu. Vinnugleðin, baráttan, þrautsegja, dugnaðurinn, krafturinn, áræðnin. Það eru svo margir hlutir sem að voru góðir í dag og þegar FH liðið er á þessum degi er erfitt að eiga við það“ hélt hann svo áfram.
Þróttur komst í 0-2 eftir 20 mínútur, aðspurður hvort hann sé ekki sáttur við viðbrögð síns liðs eftir það segir hann:
„Þróun leiksins var á þann veg að það var engan bilbug á okkur að finna. Við vorum yfir, höfðum yfirhöndina þegar við fáum þessi mörk á okkur það er ekki eins og Þróttur hafi verið að liggja eitthvað á okkur. Þær gera mjög gott mark úr föstu leikatriði, 1-0, skora síðan stuttu seinna, 2-0, en þetta voru einu færin þeirra í fyrri hálfleik. Við höfum áður lent undir, það truflar okkur ekki neitt.“
Ída Marín, leikmaður FH, hefur verið orðuð við atvinnumennsku síðustu daga og vikur en Guðni segist ekkert vita hver staðan er á því en hann hlýtur að vona að hún klári mótið með þeim:
„Ég bara vona að hún fái bara það sem að hún á skilið. Mitt hlutverk er að gera leikmenn betri, ég ber ábyrgð á því ásamt þjálfarateyminu og ef að við náum að taka leikmann sem að var að ströggla í öðru liði og við komum honum á betri stað þá er mín vinna, hún er komin.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.



