Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 16. ágúst 2020 14:15
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Tækling Nóa Snæhólms varð að stoðsendingu
Mynd: Frej
Nói Snæhólm Ólafsson lék allan leikinn í hægri bakverði er Senica lagði Michalovce að velli í efstu deild slóvakíska boltans.

Nói átti góðan leik og lagði óvart upp síðasta mark leiksins með góðri tæklingu á miðjuboganum þar sem hann var aftasti maður.

Tæklingin bjargaði dauðafæri og barst boltinn til Edmund Addo sem lék á nokkra andstæðinga áður en hann skoraði glæsilegt mark.

Myndband af markinu má sjá hér fyrir neðan en hinn 26 ára gamli Nói er nýlega genginn í raðir félagsins eftir nokkur ár í neðri deildum sænska boltans.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner