Fotbolti.net
16.08.23 - 09:30
Elvar Geir Magnússon

Paredes aftur til Roma (Staðfest)

Leandro Paredes.

Leandro Paredes.

Canon

Mynd: Getty Images

Leandro Paredes er formlega orðinn leikmaður Roma og verður í treyju númer 16 hjá ítalska félaginu.

Argentínski miðjumaðurinn kemur frá PSG og hefur skrifað undir samning til sumasins 2025.
Paredes var hjá Juventus á lánssamningi á síðasta tímabili en hann snýr nú aftur til Roma þar sem hann skoraði fjögur mörk í 54 mótsleikjum milli 2014 til 2017.

Treyja 16 hjá Roma er fræg en goðsögnin Daniele De Rossi lék með númerið á bakinu. Paredes hafði samband við De Rossi og bað um leyfi fyrir því að spila í númerinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.