16.08.26 - 19:16
Ívan Guðjón Baldursson
Man City samþykkti þriðja tilboðið frá Barca

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spánarmeistarar Barcelona eru búnir að ná samkomulagi við enska stórveldið Manchester City um kaupverð fyrir Rodri, sem er af mörgum talinn besti miðjumaður heims.

TENGT EFNI
Börsungar leggja fram þriðja tilboðið í Rodri
Rodri er ótrúlegur fótboltamaður sem náði sér virkilega vel eftir erfið meiðsli og var valinn leikmaður mótsins er Spánn vann annan heimsmeistaratitil sögu sinnar, tæpum tveimur árum eftir að Rodri vann einstaklingsverðlaunin eftirsóttu Ballon d'Or í október 2024.
Rodri er 30 ára gamall og aðeins með eitt ár eftir af samningi í Manchester, en Barcelona borgar þó tæplega 80 milljónir evra til að ganga frá kaupunum.
City vildi halda Rodri og bauð Spánverjanum nýjan samning, en heimsmeistarinn kaus að takast frekar á við nýja áskorun í heimalandinu.
Man City steinlá gegn Arsenal í úrslitaleiknum um Samfélagsskjöldinn fyrr í dag og var fjarvera Rodri af miðjunni augljós.