Fotbolti.net
16.09.06 - 06:52
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Denilson til Sádi-Arabíu (Staðfest)

Denilson til Sádi-Arabíu (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fyrrum brasilíski landsliðsmaðurinn Denilson hefur gengið til liðs við Al Nasr í Sádi-Arabíu og skrifaði hann undir eins árs samning.
Hinn 29 ára gamli Denilson mun fá um 110 milljónir íslenskra króna á þessu eina ári og var hann keyptur til félagsins eftir að þeim mistókst að fá til sín Marcelo Gallardo hjá River Plate.

Denilson var í þessari viku á reynslu hjá Portsmouth en honum mistókst að heilla stjórann Harry Redknapp. Þá voru Middlesbrough, Tottenham, Celtic og Gazianteospor einnig talin vera á eftir kappanum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.