16.09.22 - 14:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þurfti eitthvað að sannfæra Aron um að koma aftur í hópinn?

Aron Einar Gunnarsson og Arnar Þór Viðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, er kominn aftur inn í landsliðshópinn eftir langa fjarveru.
Aron og Eggert Gunnþór Jónsson voru kærðir síðasta haust en kona sakaði þá um að hafa nauðgað sér í Kaupmannahöfn árið 2010.
Héraðssaksóknari felldi niður málið í maímánuði síðastliðnum en sá úrskurður var kærður og tók ríkissaksóknari þá málið fyrir og er niðurstaðan sú að málið hefur nú verið fellt niður.
Aron getur því snúið aftur í hópinn og hann gerir það.
„Það vita allir hvað Aron Einar getur gefið þessu liði. Það var aldrei spurning að velja leiðtoga eins og Aron í liðið," sagði Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, á fréttamannafundi í dag.
Aron gaf frá sér yfirlýsingu í fyrra þar sem hann kvaðst ósáttur og sagðist vera settur saklaus til hliðar í nýrri útilokunarmenningu KSÍ.
Undirritaður spurði landsliðsþjálfarann hvort það hefði eitthvað þurft að sannfæra Aron til þess að koma aftur í hópinn.
„Hann hefur verið mjög jákvæður eftir að við byrjuðum að tala saman fyrir þetta verkefni og ég veit að honum hlakkar til að hjálpa til," sagði Arnar.