Fotbolti.net
16.10.06 - 11:53
Hafliði Breiðfjörð

Baldur Bett í Val (Staðfest)

Ótthar Edvardsson aðstoðarframkvæmdastjóri Vals ásamt Baldri Bett.

Ótthar Edvardsson aðstoðarframkvæmdastjóri Vals ásamt Baldri Bett.

Canon

Mynd: Valur

Baldur Bett sem hefur leikið með Íslandsmeisturum FH undanfarin ár er genginn í raðir Valsmanna og skrifaði undir þriggja ára samning við félagið. Þetta staðfestu Valsmenn í fréttatilkynningu nú í dag en Baldur hafði tilkynnt fyrr í mánuðinum að hann ætlaði að yfirgefa FH. Samningur hans við FH er að renna út.
Baldur er fæddur 1980 og hefur verið einn af lykilmönnum Íslandsmeistaraliðs FH undanfarin ár. Hann lék með Aberdeen áður en hann gekk til liðs við FH árið 2000. Baldur hefur leikið 4 U17 ára landsleiki og 3 U19 með Íslenska landsliðinu. Með FH lék hann 99 leiki í efstu deild.

Baldur lék 16 af 18 leikjum FH í Landsbankadeildinnií sumar og varð mikilvægur hlekkur í liðinu eftir meiðsli lykilmanna.

Í tilkynningu Valsmanna segir að jafnvel séu fleiri leikmenn á leið til félagsins: ,,Verið að huga að leikmannamálum og ekki útilokað að nýir leikmenn muni bætast við hópinn á komandi vikum," segir í tilkynningunni en Jóhann Þórhallsson og Jóhann Helgason úr Grindavík eru nú orðaðir við þá.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.