Fotbolti.net
16.10.06 - 15:20
Magnús Már Einarsson

Igor Pesic til Fram (Staðfest)

Igor Pesic (til hægri) í leik gegn Keflavík í sumar.

Igor Pesic (til hægri) í leik gegn Keflavík í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Miðjumaðurinn Igor Pesic sem hefur leikið með ÍA undanfarin tvö ár hefur gert eins árs samning við Framara og mun hann ganga til liðs við þá þegar að samningur hans við Skagamenn rennur út um áramótin.
Igor sem er 24 ára Serbi hittir fyrir hjá Fram, Ólaf Þórðarson fyrrum þjálfara sinn hjá ÍA en hann tók við Safamýrarliðinu nu á haustdögum. Orðrómur hafði verið uppi um að Igor myndi ganga til liðs við bikarmeistara Keflvíkinga en hann ákvað hins vegar að fara til Framara.

Eftir að hafa leikið með Dubocika Leskovac, FK Zemun og Borak Cacak í heimalandinu gekk Igor til liðs við Skagamenn vorið 2005.
Hann lék ellefu leiki í Landsbankadeildinni í fyrra og skoraði eitt mark, frá miðju gegn KR. Í sumar lék hann tólf leiki í deildinni og skoraði einnig eitt mark, en það kom gegn Valsmönnum snemma sumars.

Sjá einnig:
Hin Hliðin á Igor Pesic (Júní 2006)

Heimild: Heimasíða Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.