16.10.26 - 19:16
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deild kvenna: G/N vann nýliðaslaginn í efri hlutanum

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Grindavík/Njarðvík 2 - 1 ÍBV
1-0 Tinna Hrönn Einarsdóttir ('49)
2-0 Elísa Birta Káradóttir ('90)
2-1 Ágústa María Valtýsdóttir ('92)
1-0 Tinna Hrönn Einarsdóttir ('49)
2-0 Elísa Birta Káradóttir ('90)
2-1 Ágústa María Valtýsdóttir ('92)
Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 2 - 1 ÍBV
Grindavík/Njarðvík og ÍBV mættust í spennandi nýliðaslag í Bestu deild kvenna í dag en bæði lið náðu að tryggja sig í efri hluta deildarinnar fyrir tvískiptingu.
Staðan var markalaus eftir nokkuð tíðindalítinn fyrri hálfleik. Heimakonur voru meira með boltann og sköpuðu hættulegri stöður en áttu erfitt með að koma sér í gott færi.
Síðari hálfleikurinn byrjaði á marki heimakvenna, þegar Tinna Hrönn Einarsdóttir kláraði gott færi af miklu öryggi eftir frábæra fyrirgjöf frá Ásu Björg Einarsdóttur.
Eyjakonur hótuðu jöfnunarmarki og áttu skot í slá áður en heimakonur tvöfölduðu forystuna sína á lokamínútum leiksins. Elísa Birta Káradóttir nýtti sér þá óheppileg mistök í varnarlínu ÍBV til að skora auðvelt mark.
Eyjakonur minnkuðu muninn í uppbótartíma en höfðu ekki tíma til að gera jöfnunarmark, svo lokatölur urðu 2-1.
G/N er í fjórða sæti með 29 stig eftir 22 umferðir, einu stigi á eftir ÍBV. Liðin eiga ekki möguleika á öðru sæti Bestu deildarinnar.