Fotbolti.net
16.10.26 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson

Jói Kalli: Vorum ekki við sjálfir í dag

Auglýsing
Jói Kalli: Vorum ekki við sjálfir í dag
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH var mjög ósáttur með frammistöðu liðsins í tapi gegn ÍBV á Hásteinsvelli í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 3 - 1 FH
FH lenti undir snemma leiks en lék einum manni fleiri í rúma klukkustund. Hafnfirðingum tókst þó ekki að snúa stöðunni við og urðu lokatölur 3-1 fyrir ÍBV.

„Leikplanið var ekki að koma hingað til að vera svona soft í pressunni eins og við vorum á köflum. Í fyrri hálfleik vildum reyna að vera með vindinum og gera atlögu að markinu þeirra en við vorum bara ekki við sjálfir hérna í dag, hvorki í pressunni né uppspilinu," sagði Jói Kalli eftir lokaflautið.

„Ég ætla ekki að taka neitt af ÍBV sem spilaði bara virkilega vel. Þeir eru vel mannaðir, með fullt af góðum fótboltamönnum í liðinu og leystu oft vel þegar við fórum og pressuðum þá maður á mann. Við réðum ekki við þá á stórum köflum í leiknum.

„Við vorum manni fleiri allan seinni hálfleikinn en ÍBV varðist vel. Við enduðum á því að koma boltanum bara inn í teig úr fyrirgjafastöðum svolítið utarlega á kantinum. Við vildum komast aftur fyrir vörnina hjá ÍBV en það heppnaðist ekki nógu vel hjá okkur. Hafsentaparið hjá þeim stóð sig mjög vel. Við náðum ekki að opna þá nógu vel, við náðum ekki að teygja á þeim."


FH er svo gott sem búið að forðast fall úr Bestu deildinni eftir að hafa unnið síðustu þrjá leiki í röð fyrir tapið í Vestmannaeyjum.
Jói Kalli: Vorum ekki við sjálfir í dag
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Neðri hluti

#LiðLmunStig
1Stjarnan27-834
2Valur27-834
3FH27-730
4Þór27-3030
5KA27-929
6ÍBV27-1822
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.