16.10.26 - 10:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Missir mögulega af leiknum í Eyjum - „Allir hlynntir því að spila frekar í dag"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Karl - Jói Kalli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adolf Daði Birgisson var í prófi í morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH-ingar verið á góðu skriði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH heimsækir Vestmannaeyjar í dag og mætir þar ÍBV í næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar. FH er í 9. sæti Bestu deildarinnar, en ÍBV er á botninum og getur ekki haldið sæti sínu í deildinni. FH er með sex stiga forskot á Þór í 11. sætinu og 29 mörkum betri markatölu svo það er hægt að slá því föstu að Hafnfirðingar séu búnir að halda sæti sínu í deildinni. Leikurinn hefst klukkan 17:00.
Leikurinn í dag átti að vera spilaður á morgun en vegna veðurs var leiknum flýtt. Fótbolti.net ræddi við Jóa Kalla um undirbúninginn.

TENGT EFNI
Þrír leikir í Bestu færðir fram á föstudag
Óvíst hvort Adolf Daði nái leiknum
„Við fórum með hluta af hópnum í gær. Það er stór hluti kominn til Eyja, það kom svo pínu á óvart þessi breyting í morgun að það væri farið frá Landeyjum í dag, en ég held að við náum þessu flestallir. Stór hluti af hópnum fór frá Þorlákshöfn í gær, við gáfum mönnum val hvort þeir færu í gær eða í dag. Það voru einhverjir með skuldbindingar sem var ekki hægt að hætta við og því skiptist hópurinn upp. Svo var því breytt eldsnemma í morgun að hætta að sigla frá Þorlákshöfn og því farið frá Landeyjum, það þarf því að keyra töluvert lengra, en siglingin þægilegri þar sem það er fínasta veður núna," segir Jói Kalli.
Að þið flestallir náið þessu, hvað þýðir það?
„Það er spurning með Adolf Daða, hann var í prófi núna í morgun og nær ekki bátnum frá Landeyjahöfn núna klukkan 10:45, hefði náð honum ef það hefði verið siglt úr Þorlákshöfn. Það er óvíst hvort það verði aftur siglt úr Landeyjahöfn í dag og ef það verður ekki þá nær hann ekki leiknum."
Adolf er 22 ára sóknarmaður sem hefur skorað tvö mörk í síðustu þremur leikjum og alls sex mörk á tímabilinu.
Allir hlynntir því að spila frekar í dag
Leikdegi var breytt með skömmum fyrirvari, hefur það áhrif á undirbúninginn?
„Nei, nei, breytingum fylgja alltaf pínu rót en við náðum að leysa þetta þannig að gefa mönnum kost á því að fara degi fyrr og gista í Eyjum þannig það var bara allt í lagi og svo fyrst að það er siglt núna úr Landeyjahöfn þá er það mikið þægilegra ferðalag. Þetta ætti því að hafa minniháttar áhrif og bara fínasta veður í Eyjum núna þannig það er bara allt í góðu."
Kannski bara jákvætt að það sé spilað í góðu veðri og meiri líkur á betri fótbolta?
„Það á náttúrulega að verða mikið verra veður á morgun og það voru allir hlynntir því að spila frekar í dag í góðu veðri, það er betri niðurstaða þegar uppi er staðið myndi ég halda."
Vilja halda áfram að þróa leik sinn
Hvernig nálgist þið lokaleikina tvo?
„Sama og öll úrslitakeppnin hefur verið, höldum áfram að spila okkar leik og það er alltaf tími fyrir bætingar og tími til að halda áfram að þróa liðið. Við viljum náttúrulega bara fara inn í alla leiki til þess að vinna. Þetta snýst um hugarfarið er andlega þáttinn. Við viljum halda áfram að spila okkar leik og halda áfram að þróa því við erum náttúrulega ungt lið og það eru ekkert margir sem hafa spilað mikið og lengi saman þannig að við getum nýtt upp þennan tíma til þess að búa til sambönd á milli leikmanna og reynslu manna á milli og halda áfram að þróa okkar leik. Það skiptir okkur miklu máli," segir Jói Kalli.

Besta karla - Neðri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Valur | 25 | -5 | 31 |
| 2 | Stjarnan | 25 | -12 | 31 |
| 3 | FH | 25 | -4 | 30 |
| 4 | KA | 25 | -10 | 26 |
| 5 | Þór | 25 | -33 | 24 |
| 6 | ÍBV | 25 | -16 | 19 |