Fotbolti.net
16.10.26 - 18:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ótrúlegar 90 sekúndur á Hásteinsvelli

Bjarki Björn fékk reisupassann.

Bjarki Björn fékk reisupassann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nú er í gangi leikur ÍBV og FH í Bestu deildinni og leiðir ÍBV þegar þetta er skrifað með einu marki.

Omar Sowe skoraði eina mark leiksins eftir fyrirgjöf frá Arnóri Inga Kristinsson.

Á 35. mínútu hefði ÍBV getað tvöfaldað forystu sína, Omar Sowe átti þá stangarskot og Heiðmar Þór Magnússon, sem er í byrjunarliði ÍBV í fyrsta sinn, fylgdi á eftir en setti frákastið í þverslána þegar markið var opið. Það er auðvelt að segja að það hafi verið eitt af klúðrum ársins.

„HAAA!!! Hvernig skora ÍBV ekki þarna!! Omar er sloppinn einn í gegn og setur boltann í stöngina fram hjá Jökli. Heiðmar tekur frákastið og er með opið mark en hann nær einhvern veginn að setja boltann í slána!! Það var auðveldara að skora þarna en ekki," skrifaði Tryggvi Guðmundsson í textalýsingu frá leiknum.
Lestu um leikinn: ÍBV 3 - 1 FH
Mínútu seinna lenti Bjarka Birni Gunnarssyni og Guðmundi Andra Tryggvasyni saman.

Andri vann boltann af Bjarka og greip í kjölfarið utan um hann, Bjarki var ekki sáttur við það og felldi Andra. Þegar Andri lá ýtti Bjarki í tvígang í hann, stóð yfir og honum og lét FH-inginn heyra það. Gunnar Oddur Hafliðason, dómari leiksins, gaf Bjarka tvö gul spjöld í röð og þar með rautt. Það er eitthvað sem gerist mjög sjaldan.

Nú eru um 25 mínútur eftir af leiknum. ÍBV er fallið úr Bestu deildinni en gæti endað í 11. sætinu. FH er í 9. sætinu og gæti með sigri komið sér í 7. sætið.


Guðmundur Andri og Bjarki Björn lentu í glímu.

Guðmundur Andri og Bjarki Björn lentu í glímu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.