16.10.26 - 22:42
Sigurjón Árni Torfason
Sölvi Geir: Kæmi ekki á óvart ef hann færi út
Auglýsing

Sölvi Geir var eðlilega sáttur eftir leik!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar heimsóttu Breiðablik á Eikarvöll í 4. umferð Bestu deildar karla. Leiknum lauk með 2-1 sigri Víkinga í skemmtilegum en hitamiklum leik. Fótbolti.net voru á staðnum og heyrðu í Sölva eftir leik.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 2 Víkingur R.
„Bara sáttur með þrjú stig. Þetta var svona jafnræði í byrjun leiks og hérna. .. En síðan fá þeir rautt spjald. Þegar þeir fá þeir rauða spjaldið þá breytist leikurinn algjörlega okkur í vil og við gerum bara vel. Það er ekkert sjálfgefið að taka þessa miklu stjórn eins og við gerðum í leiknum og unnum vel fyrir henni og svona óheppnir eða klaufar að koma ekki marki í fyrri hálfleik en við nýttum það betur í seinni hálfleik."
Sveinn Margeir kom inná sem varamaður og skoraði geggjað aukaspyrnumark.
„Hann er bara hörku skotmaður, við vorum með skotæfingu í gær sem að hann vann þannig að þetta hérna kom mér ekkert á óvart en ég missti því miður af markinu. Viktor Bjarki var eitthvað að tauta í mér þarna, þannig að draga athyglina mína frá markinu þannig að, en ég fékk að sjá þetta í spjaldtölvunni áðan, þetta var geggjað mark."
Óskar Borgþórsson leikmaður Víkings hefur verið orðaður við atvinnumennsku. Fer hann í glugganum?
„Já og nei. það bara kemur í ljós eins og allt annað. Óskar er frábær og búinn að standa sig hrikalega vel. Hann var alveg á eldi fyrir meiðslin og er búinn að sanna það að hann er í levelinu svona hátt og hann á alveg skilið fyrir frammistöðuna sína að fá tilboð erlendis frá þannig að það kæmi mér ekki á óvart ef það kæmi tilboð og hann færi út en við þurfum bara að sjá til, sjá hvort það gerist og tækla það þegar að því kemur."