16.11.06 - 16:23
Magnús Már Einarsson
Jónmundur Grétarsson aftur í Stjörnuna (Staðfest)

Jónmundur í leik með Haukum.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Jónmundur í leik með Haukum.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Sóknarmaðurinn Jónmundur Grétarsson er genginn aftur til liðs við Stjörnuna eftir að hafa leikið með Haukum í fyrstu deildinni síðastliðið sumar.
Jónmundur sem er 21 árs gamall er uppalinn hjá Stjörnunni og sumarið 2004 lék hann tólf leiki í deild og bikar með félaginu.
Hann skipti yfir í Hauka síðastliðið vor og skoraði fimm mörk í átján leikjum í fyrstu deild fyrir liðið sem og tvö mörk í jafnmörgum leikjum í VISA-bikarnum.
Hann skipti yfir í Hauka síðastliðið vor og skoraði fimm mörk í átján leikjum í fyrstu deild fyrir liðið sem og tvö mörk í jafnmörgum leikjum í VISA-bikarnum.
