Fotbolti.net
16.12.14 - 12:45
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Arsenal, Man Utd og Tottenham þema

De Gea er að sjálfsögðu í markinu.

De Gea er að sjálfsögðu í markinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal á fjóra menn í úrvalsliði helgarinnar hjá whoscored.com eftir 4-1 sigurinn á Newcastle.

Manchester United á þrjá menn eftir að hafa sigrað Liverpool 3-0 og Tottenham fær einnig þrjá menn í liðinu eftir sigurinn á Swansea.


David De Gea (Manchester United)
De Gea átti nokkrar magnaðar markvörslur gegn Liverpool. Ein besta frammistaða hjá markverði á tímabilinu.

Hector Belerin (Arsenal)
Þessi fljóti leikmaður var öflugur í sigri Arsenal á Newcastle.

Phil Jones (Manchester United)
Stóð vaktina vel í vörn United sem hélt hreinu gegn Liverpool.

Federico Fazio (Tottenham)
Hjálpaði Tottenham að landa þremur stigum á útivelli gegn Swansea.

Ben Davies (Tottenham)
Öflugur á sínum gamla heimavelli gegn Swansea.

Alexis Sanchez (Arsenal)
Heldur áfram að blómstra í enska boltanum. Mjög góður gegn Newcastle.

Santi Cazorla (Arsenal)
Skoraði tvívegis í 4-1 sigrinum á Newcastle. Fyrra markið var einstaklega laglegt.

Ross Barkley (Everton)
Skoraði mark af dýrari gerðinni í sigrinum á QPR í gærkvöldi.

Christian Eriksen (Tottenham)
Setti sigurmark Tottenham gegn Swansea.

Olivier Giroud (Arsenal)
Skoraði tvö mörk í sigri Arsenal.

Robin van Persie (Manchester United)
Mark og stoðsending gegn Liverpool. Fínt dagsverk hjá Hollendingnum.

Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Cazorla og Alexis eru báðir í liðinu.

Cazorla og Alexis eru báðir í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Christian Eriksen skoraði sigurmark Tottenham.

Christian Eriksen skoraði sigurmark Tottenham.

Canon

Mynd: Getty Images

Olivier Giroud skoraði tvö gegn Newcastle.

Olivier Giroud skoraði tvö gegn Newcastle.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.