Fotbolti.net
16.12.25 - 16:00
Enski boltinn

„Við þurfum ekkert að fara í feluleik með það"

Alexander Isak.

Alexander Isak.

Canon

Mynd: EPA

Kaupin á Alexander Isak til Liverpool eru án efa þau verstu sem voru gerð fyrir yfirstandandi tímabil. Ef Isak fer ekki að rífa sig í gang, þá verða þetta mögulega ein verstu kaup í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Isak fór í verkfall hjá Newcastle til að koma sér yfir til Liverpool. Hann var keyptur til Englandsmeistarana á lokadegi félagaskiptagluggans fyrir 125 milljónir punda sem gerði hann að dýrasta leikmanni í sögu enska boltans.
Isak hefur ekki verið í góðu standi frá því hann kom til Liverpool en hann hefur aðeins gert tvö mörk í 15 leikjum til þessa.

„Verstu kaup tímabilsins eru kaupin á Alexander Isak, við þurfum ekkert að fara í feluleik með það. Eins og staðan er núna," sagði Magnús Haukur Harðarson, sem er stuðningsmaður Liverpool, í Enski boltinn hlaðvarpinu.

Hefurðu trú á því að hann muni reynast góður fyrir Liverpool?

„Ég hef trú á því að þetta verði betra, en hversu mikið veit ég ekki. Það er stóra spurningin."

Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér að neðan.

Enski boltinn - Hvað ertu eiginlega að tala um?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.