17.01.06 - 15:02
Hafliði Breiðfjörð
Marcus Bent til Charlton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Charlton hafa gengið frá kaupum á Marcus Bent framherja Everton en kaupverðið sem er 2 milljónir punda gæti hækkað upp í 2,5 milljónir. Bent er 27 ára gamall framherji en hann gerir þriggja og hálfs árs samning við Charlton og verður annar framherji liðsins með nafnið Bent, því fyrir er Darren Bent í framlínu liðsins.
,,Charlton eru lið sem ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir. Ég get ekki beðið eftir að byrja og hlakka mikið til þess," sagði Bentí dag.
,,Þeir skapa alltaf sterk lið hérna niðri og það er gott að fá tækifæri til að spila fyrir Alan Curbishley. Það var alltaf orðrómur í sumar og ég tel að þetta hafi verið í gangi."
,,Þegar nálgaðist félagaskiptagluggann vissi ég að Everton vildu fá annan framherja. Það þýddi ekki að ég yrði að fara en mér fannst það betra fyrir mig fyrst ég var ekki að spila."
Curbishley hefur lengi haft augastað á Bent en keypti hann þegar ljóst varð að Jason Euell yrði seldur til Birmingham. Bent skoraði sjö mörk í 42 leikjum með Everton á síðustu leiktíð.