17.01.06 - 23:43
Magnús Már Einarsson
Arnar Þór til Twente (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Miðjumaðurinn Arnar Þór Viðarsson hefur gert þriggja og hálfs árs samning við hollenska liðið Twente eftir að hann stóðst læknisskoðun hjá liðinu en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net í kvöld.
Twente kaupir Arnar Þór frá belgíska liðinu Lokeren þar sem hann hefur leikið undanfarin níu ár. Talið er að kaupverðið sé 125 þúsund evrur en samningur Arnars við Lokeren átti að renna út næsta sumar.
Ef leikheimild Arnars Þórs berst í tæka tíð ætti hann að geta leikið sinn fyrsta leik fyrir Twente á sunnudaginn þegar að liðið tekur á móti stórliði Ajax.
Ef leikheimild Arnars Þórs berst í tæka tíð ætti hann að geta leikið sinn fyrsta leik fyrir Twente á sunnudaginn þegar að liðið tekur á móti stórliði Ajax.
