Fotbolti.net
17.01.07 - 18:00
Andri Fannar Stefánsson

David Dunn til Blackburn (Staðfest)

Dunn í baráttunni við Pascal Chimbonda.

Dunn í baráttunni við Pascal Chimbonda.

Canon

Mynd: Getty Images

David Dunn hefur gengið aftur til liðs við Blackburn frá Birmingham en þessi 27 ára leikmaður neitaði Bolton til þess að skrifa undir hjá liðinu í heimabæ sínum.
Dunn kom í gegnum unglingastarfsemina á Ewood Park áður en hann fór þaðan árið 2003 og honum hefur ekki vegnað vel á St Andrews og hefur hann átt við tíð meiðsli að stríða.

,,Ég óska honum góðs gengið og ég vona að breyttar aðstæður geri honum kleift að verða heill og komast í gott form því það er synd að sjá svona hæfileikaríkan leikmann ekki getað spilað upp á sitt besta," sagði Steve Bruce stjóri Birmingham.

,,Hann kom hingað ungur og við borguðum 5,5 milljónir punda fyrir þremur og hálfu ári síðan. Það hefur ekki gengið eins vel hjá honum hérna og við vonuðumst til en það litla sem við höfum séð af honum er að hann er einn af þessum sem geta gert eitthvað sérstakt og öðruvísi."

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.