17.01.08 - 12:25
Hafliði Breiðfjörð
Lassana Diarra til Portsmouth (Staðfest)

Lassana Diarra.

Mynd: Getty Images

Lassana Diarra.

Mynd: Getty Images
Harry Redknapp knattspyrnustjóri Portsmouth hefur gengið frá kaupum á Lassana Diarra miðvallarleikmanni Arsenal en þetta var staðfest nú í morgun.
Diarra sem er 22 ára gamall franskur landsliðsmaður gerir þriggja og hálfs árs samning við Portsmouth en kaupverð var ekki gefið upp.
,,Að mínu mati er hann nú þegar einn af bestu miðjumönnunum í úrvalsdeildinni og hefur hæfileika til að verða einn af þeim bestu í heiminum," sagði Redknapp í dag.
,,Ég er hæstánægður með að hann ákvað að koma til okkar í stað þess að velja fjölda annarra félaga sem vildu hann," bætti Redknapp við.
Diarra hafði komið til Arsenal frá Chelsea í sumar en var ósáttur við að fá ekki að spila meira og óskaði því eftir að fá að fara.

Heimild: BBC