Fotbolti.net
17.01.20 - 21:48
Ívan Guðjón Baldursson

Belgía: Kolbeinn byrjaði er Lommel sigraði Lokeren

Belgía: Kolbeinn byrjaði er Lommel sigraði Lokeren
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lommel 1 - 0 Lokeren
1-0 Beka Vachiberadze ('3)
Kolbeinn Þórðarson var í byrjunarliði Lommel gegn Lokeren í belgísku B-deildinni fyrr í kvöld.

Lommel hafði betur með einu marki gegn engu. Sigurmarkið gerði Beka Vachiberadze á þriðju mínútu.

Kolbeinn lék í holunni fyrir aftan Mitja Krizan, fremsta mann Lommel.

Liðinu hefur gengið þokkalega vel að undanförnu og er búið að sigra þrjá af síðustu fimm deildarleikjum sínum. Lommel er komið þremur stigum frá fallsvæðinu, með 24 stig eftir 22 umferðir.

Lokeren vermir botnsætið með 18 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.