Fotbolti.net
19.10.26 - 21:04
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

„Ef þú berð Breiðabliksmerkið, þá erum við sigurvegarar"

Auglýsing
„Ef þú berð Breiðabliksmerkið, þá erum við sigurvegarar"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Breiðablik varð Íslandsmeistari í kvöld eftir 0-1 sigur á Stjörnunni á Samsungvellinum. Leikmaður liðsins,  Kristín Dís Árnadóttir, ræddi við Fotbolta.net eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 1 Breiðablik

„Mér líður mjög vel. Mér fannst við vera mjög flottar í dag og sýndum alvöru karakter, gerðum það sem við þurftum að gera."

„Breiðablik er ekki klúbbur sem spilar fyrir jafntefli, við vorum alltaf að fara inn í þennan leik til þess að vinn hann."

„Við erum með nýtt lið og nýtt teymi, búið að vera upp og niður. Heilt yfir finnst mér við búin að vera besta liðið á landinu ."

„Ég held að Jeffs hafi sagt það frá fyrsta fundi að hann ætli að koma hérna og við ætlum að vinna. Það er andi í liðinu, ef þú berð Breiðabliksmerkið, þá erum við sigurvegarar. Ég er mjög stolt af liðinu mínu í dag."

„Clean sheet og það er mjög sætt að vinna eitt núll."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan

„Ef þú berð Breiðabliksmerkið, þá erum við sigurvegarar"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.