Fotbolti.net
19.10.26 - 22:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Matti Villa og Viktor Bjarki í Garðabæinn?

Matti Villa og Viktor Bjarki í Garðabæinn?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan staðfesti á dögunum ráðningu á Rúnari Páli Sigmundssyni sem þjálfara liðsins. Hann gerði Stjörnuna að Íslandsmeistara 2014 og bikarmeistara 2018.
Guðmundur Benediktsson sagði frá því í Stúkunni í kvöld að Matthías Vilhjálmsson verði aðstoðarþjálfari Rúnars. Matthías hefur verið þjálfari í yngri flokkum Víkings eftir að hafa lagt skóna á hilluna fyrir ári síðan.

Þá mun Viktor Bjarki Arnarsson verða yfirmaður fótboltamála hjá Stjörnunni ef marka má heimildir Kristjáns Óla Sigurðssonar sem segir frá tíðindunum á X.

Viktor Bjarki kemur einnig úr Víkinni en hann er aðstoðarþjálfari Íslandsmeistaranna.


Viktor Bjarki Arnarsson

Viktor Bjarki Arnarsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.