Fotbolti.net
19.10.26 - 21:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deildin: Skagamenn skoruðu tvö mörk í uppbótatíma

Rafael Máni skoraði mikilvægt mark, hans fyrsta í efstu deild

Rafael Máni skoraði mikilvægt mark, hans fyrsta í efstu deild

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram 2 - 4 ÍA
1-0 Kristófer Konráðsson ('4 )
1-1 Baldvin Þór Berndsen ('33 )
1-2 Baldvin Þór Berndsen ('59 )
2-2 Kristófer Konráðsson ('66 )
2-3 Rafael Máni Þrastarson ('93 )
2-4 Viktor Jónsson ('94 )
Rautt spjald: Freyr Sigurðsson, Fram ('13) Lestu um leikinn
Fram fékk ÍA í heimsókn í Bestu deildinni í kvöld. Það var ljóst fyrir leikinn að Fram endar í 3. sæti deildarinnar en ÍA er í baráttu um 4. sæti.

Fram náði forystunni strax í upphafi leiks þegar Kristófer Konráðsson skoraði með hnitmiðuðu skoti í nærhornið. Stuttu síðar voru Framarar orðnir manni færri þegar Freyr Sigurðsson var rekinn af velli fyrir brot á Rúnari Má Sigurjónssyni.

Baldvin Þór Berndsen jafnaði metin fyrir Skagamenn þegar hann skoraði með glæsilegu skoti. Baldvin var aftur á ferðinni eftir klukkutíma leik þegar hann skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu og kom Skagamönnum yfir.

Framarar svöruðu nokkrum mínútum síðar þegar Kristófer skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Þorra Stefáni Þorbjörnssyni.

Það var svakaleg dramatík í lokin. Johannes Vall átti fyrirgjöf og boltinn barst til Rafael Mána Þrastarson og hann skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild. Þeir voru ekki hættir því Viktor Jónsson innsiglaði sigurinn strax í kjölfarið.

ÍA er í 4. sæti með 37 stig, stigi á undan Breiðabliki en Fram er í 3. sæti með 46 stig.
Tvenna Kristófers dugði skammt

Tvenna Kristófers dugði skammt

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.26+5163
2KR26+3053
3Fram26+946
4ÍA26-137
5Breiðablik26+236
6Keflavík26-1129
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.