19.10.26 - 22:56
Andri Stefánsson
Rúnar: Við áttum aldrei að tapa þessum leik
Auglýsing

Rúnar Kristinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristófer verður áfram hjá Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Kristinsson ræddi við fótbolta.net eftir 4-2 tap gegn Skagamönnum í Bestu deild karla í kvöld.

TENGT EFNI
Kristófer Konráðs áfram hjá Fram (Staðfest)
Virkilega svekkjandi tap gegn ÍA í dag. Hver eru þín fyrstu viðbrögð eftir leik?
„Já, bara eins og þú segir, svekkelsi. Við vorum mjög góðir manni færri í 80 plús mínútur og gerðum ótrúlega vel í að verja markið okkar og fengum varla á okkur færi allan tímann. Það kom fullt af fyrirgjöfum en við skölluðum allt í burtu og vorum vel skipulagðir.
Við vorum eiginlega nær því að skora þriðja markið en þeir þegar það voru fimm mínútur eftir, eða hvað það var. Þá eigum við nokkuð fína sókn og erum ógnandi. Við höfðum mikla orku í liðinu og ég er mjög ánægður með strákana.
En þetta er svolítið súrt að fá á sig þetta mark á 91. mínútu, eða hvað það var. Það kemur upp úr mjög einföldu atviki þar sem við náum ekki að koma boltanum í burtu og hann dettur fyrir mann sem er í góðri stöðu.
Svo kemur hitt markið þegar við erum að reyna að kasta öllu fram til að jafna. Þannig að heilt yfir er þetta bara svekkelsi.“
Það er staðfest að þið endið í 3. sæti. Hvernig metur þú tímabilið til þessa?
„Frábært tímabil. Við erum ekki búnir að enda þetta frábærlega vel en það að við séum í þriðja sæti þegar þrjú lið eru innan fimm stiga og að hafa tryggt það er bara frábært. Við erum stoltir af því sem við erum búnir að gera en viljum enda þetta á betri hátt en við höfum verið að gera.“
Við höfum kannski ekki alveg haft heppnina með okkur í síðustu leikjum, gegn KR síðast og allt þetta. Stundum þarf maður að hafa heppnina með sér.
En við áttum aldrei að tapa þessum leik í dag, miðað við hvernig hann spilaðist. Við ætlum bara að klára þetta með sóma, mæta brattir á laugardaginn í Víkina og reyna að stela okkur sigri þar.“
Það hefur verið slúðrað um að þið viljið fá Emil Atlason. Er það leikmaður sem þið mynduð vilja fá?
„Ég bara get ekki svarað því. Hann er leikmaður Stjörnunnar og ég vil ekki vera að ræða aðra leikmenn í deildinni sem ég hef ekki heimild til að ræða um.“
Verður Kristófer Konráðsson áfram hjá ykkur?
„Kristófer er nýbúinn að skrifa undir nýjan samning og hann verður áfram hjá okkur. Við erum gríðarlega ánægð með það."

Besta karla - Efri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 26 | +51 | 63 |
| 2 | KR | 26 | +30 | 53 |
| 3 | Fram | 26 | +9 | 46 |
| 4 | ÍA | 26 | -1 | 37 |
| 5 | Breiðablik | 26 | +2 | 36 |
| 6 | Keflavík | 26 | -11 | 29 |