19.10.26 - 22:10
Víðir Sigurðsson
Víðir Sig: Sögulegt mark á síðustu sekúndu og tímamót hjá ÍBV, Þór og Stjörnunni

Viktor Jónsson skoraði merkilegt mark á síðustu sekúndunni fyrir ÍA gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í kvöld lauk 26. og næstsíðustu umferð Bestu deildar karla þar sem búið er að útkljá flest nema hvort Akureyrarliðanna muni fylgja ÍBV niður í 1. deildina.
Viktor Jónsson náði sjaldgæfum áfanga þegar hann skoraði með síðustu spyrnu leiksins í sigri ÍA á Fram í kvöld og KA-maðurinn Hallgrímur Mar Steingrímsson náði stórum áfanga sem aðeins sex aðrir leikmenn geta státað af.
Þór gæti þurft að ná 30 stigum með sigri í lokaumferðinni til að halda sér í deildinni á meðan KA gæti haldið sér uppi á 27 stigum.
Eyjamenn skoruðu tímamótamark þó þeir séu fallnir niður í 1. deild og Þórsarar unnu tímamótasigur þegar þeir lögðu Stjörnuna að velli.
Allir þrír markaskorarar Þórs gegn Stjörnunni eru gjaldgengir í 2. flokk. Hefur það gerst áður í deildinni?
Víkingar fóru fram úr sjálfum sér, Framarar þurfa að horfa langt aftur í tímann til að finna betri árangur en í ár og Stjörnumenn hafa náð félagsmeti sem þeir eru eflaust ekki stoltir af.
Meira um þetta allt saman hér á eftir:
Úrslitin í 26. umferð:
ÍBV – FH 3-1
Breiðablik – Víkingur 1-2
Keflavík – KR 2-3
Þór – Stjarnan 3-1
Valur – KA 4-1
Fram – ÍA 2-4
Staðan:
Efri hluti: Víkingur 63, KR 53, Fram 46, ÍA 37, Breiðablik 36, Keflavík 29.
Neðri hluti: Valur 34, Stjarnan 31, FH 30, Þór 27, KA 26, ÍBV 22.