Stjarnan með nýjan liðstjóra: Sá til þess að stemmingin var góð í dag


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Gleðjum Saman


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég var ánægður með hana“ sagði Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, þegar hann var spurður út í frammistöðu liðsins í dag eftir 0-1 tap gegn Breiðabliki á heimavelli.
„Blikarnir byrjuðu betur en við. Við stýrðum leiknum stóran part í seinni hálfleik. Vorum að koma okkur í ágætis stöður en náum ekki að búa til þetta afgerandi dauðafæri, en svo kom það."
„Gleymum okkur í stundarsakir þar sem þær koma aftur fyrir okkur, góð lið gera vel og þær refsa okkur grimmilega fyrir það. Annars man ég ekki eftir mörgum góðum færum þannig sem blikarnir fá. Þetta er gott fótboltalið og Íslandsmeistarar, ég ætla að nýta tækifærið til þess að óska þeim hamingju með það."
„Ég er ánægður með frammistöðuna í dag, mér fannst attitude í mínu liði, það var effort og commitment. Það vantaði að skapa aðeins meiri afgerandi tækifæri og betri stöður, koma honum frá vinstri til hægri, hægri til vinstri. Síðasti þriðjungurinn er vandamálið en upp að síðasta þriðjung fannst mér vera góð tök á því sem við vorum að gera hérna í dag."
Stjarnan fékk horn á 88. mínútu og það vakti athygli að markmaður liðsins Bridgette Nicole Skiba var kominn inn í teig andstæðinganna.
„Eitt núll, tvö núll, þrjú núll, skiptir engu máli. Ef þú tapar, þá tapar þú, af hverju ekki. Ef fólk heldur í alvörunni að við höfðum farið inn í þennan leik, Samsungvöllurinn er okkar völlur, við verjum okkar vígi með kjafti og klóm. Ef við erum undir á 87. mínútu, þá mun ég setja alla inn í teiginn til þess að jafna leikinn. Ef þær hefðu farið upp og skorað tvö núll, okei fine I can live with that, þá tek ég ábyrgð á því. Bara reyna að jafna leikinn og ekki langt frá því líka."
Steinunn Ólafía Steinarsdóttir, átta ára, var liðsstjóri Stjörnunnar í dag í samstarfi við Gleðjum saman.
„Steinunn var algjörlega frábær. Vel gert hjá Orra í gleðjum saman verkefninu að Steinunn var með okkur á æfingu og á leiknum í dag og fékk gjafir frá Stjörnunni og stóð sig gríðarlega vel. Hún hélt á bláu möppunni og sá til þess að stemmingin var góð í dag. Frábært verkefni hjá Orra, gleðjum saman, fyrir þá sem vita ekki hvað við erum að tala um þá vil ég láta fólk kynna sér það. Sem mér finnst Orri eiga risa hrós skilið fyrir það sem hann hefur gert í því verkefni sem hann er í þar. Við tókum þátt í því með honum núna með Steinunni sem lenti í hræðilegu slysi fyrir ári síðan, stórt bros á ungri dömu í klefanum eftir leik. Það minnir mig alltaf á það líka að Fótboltinn snýst ekki bara um úrslitin á vellinum heldur líka um manneskjuna og kærleikann."
Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan


Mynd: Gleðjum Saman
