Fotbolti.net
19.10.26 - 23:14
Andri Stefánsson

Lárus Orri: Fram er besta skyndisóknarlið landsins

Auglýsing
Lárus Orri.

Lárus Orri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fótbolti.net ræddi við Lárus Orra eftir 4-2 útisigur á Fram í Bestu deild karla í kvöld.
Formaður ÍA: Lárus Orri er með áframhaldandi samning
TENGT EFNI

Formaður ÍA: Lárus Orri er með áframhaldandi samning

Lestu um leikinn: Fram 2 - 4 ÍA
Hver eru þín fyrstu viðbrögð eftir leik?

„Gríðarlega ánægður með leikmennina. Þótt við værum einum fleiri í kannski 70 mínútur var þetta mjög erfiður leikur. Fram er besta skyndisóknarlið landsins og við þurftum að brjóta niður mjög öfluga og vel skipulagða vörn. Leikmennirnir voru þolinmóðir og leystu þetta mjög vel.“

Þið skoruðuð tvö mörk undir lok leiks. Það hlýtur að vera sætt?

„Jú, ekki spurning. Mér þykir líka vænt um að Rafael skyldi skora. Hann hefur staðið sig mjög vel í sumar þótt hann hafi kannski ekki fengið eins margar mínútur og hann vonaðist eftir.“

Brynjar Óðinn byrjar sinn fyrsta leik, aðeins 17 ára gamall. Virkilega jákvætt fyrir hann?

„Já, mjög jákvætt. Hann hefur verið meiddur meira og minna allt sumarið en hann er gríðarlega öflugur hægri bakvörður.“

Aðeins út í þjálfaramálin. Getur þú sagt eitthvað um þau?

„Það var viðtal sem Steinke tók við mig og birtist á síðunni ykkar í síðustu viku. Ég sagði allt sem ég þarf að segja um það mál þar.“

Verður þú áfram?

„Eins og ég segi, Steinke tók viðtal við mig þar sem farið var í gegnum þetta mál. Ef einhver vill vita hvað ég hef um það að segja getur hann kíkt á það viðtal.“

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.26+5163
2KR26+3053
3Fram26+946
4ÍA26-137
5Breiðablik26+236
6Keflavík26-1129
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.