Fotbolti.net
19.10.26 - 20:51
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Agla María: Við náum að halda hefðinni

Auglýsing
Agla María: Við náum að halda hefðinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Breiðablik varð Íslandsmeistari í kvöld eftir 0-1 úti sigur á Stjörnunni. Fyrirliði liðsins, Agla María Albertsdóttir, ræddi við Fotbolta.net eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 1 Breiðablik

„Frábært að klára þetta og yndislegt að klára þetta fyrir loka leikinn."

„2024 þá náðum við að koma til baka eftir langan tíma án þess að hafa unnið neitt. 2025 vorum við með frábært lið, en núna mætum við til leiks með gjörbreytt lið, náum að púsla þessum saman. Búið að ganga vel, búið að ganga illa, eitthvernveginn allt þar á milli. Þetta var ótrúlega sætt að ná að sigla þessu heim."

„Auðvitað breytist eitthvað. Við náum að halda ákveðnum kjarna í hópnum, með reynslumikla leikmenn. Kristín Dís hefur verið gjörsamlega frábær í sumar, Karítas sömuleiðis. Við erum með fleiri leikmenn, Elín var hérna í fyrra. Þetta eru margir leikmenn sem við höldum samt sé áður áfram og hafa stigið enn frekar upp. Við náum að halda hefðinni."

„Það var mikið um meiðsli á tímabili, við vorum með þunnan hóp. Búin að tapa stórt, búin að vinna stórt, allt þar á milli eitthvern veginn. Það er seiglan sem er búin að koma okkur á þennan stað."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan

Agla María: Við náum að halda hefðinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.