Þróttarar frá Vogum hafa krækt í nýjan leikmann því í dag var Ásgeir Marinó Baldvinsson kynntur sem nýr leikmaður félagsins.
Miðjumaðurinn Ásgeir kemur frá Þór Akureyri og á samtals að baki 44 leiki fyrir Þórsara í Lengjudeildinni og bikarnum.
Miðjumaðurinn Ásgeir kemur frá Þór Akureyri og á samtals að baki 44 leiki fyrir Þórsara í Lengjudeildinni og bikarnum.
Ásgeir, sem er 21 árs, getur einnig spilað fleiri stöður á vellinum. Samningur hans gildir til tveggja ára.
Ásgeir er sjötti leikmaðurinn sem Þróttarar hafa fengið í sínar raðir frá því síðasta tímabili lauk.
Áður höfðu þeir Guðni Sigþórsson, Adam Árni Róbertsson, Emil Skorri Þ. Brynjólfsson, Anton Freyr Hauks Guðlaugsson og Hreinn Ingi Örnólfsson samið við Þróttara sem féllu úr Lengjudeildinni síðasta sumar og verða því í 2. deild á komandi tímabili.
Athugasemdir