Fotbolti.net
17.01.26 - 14:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Man Utd fór illa með Man City

England: Man Utd fór illa með Man City
Canon

Mynd: EPA

Manchester Utd 2 - 0 Manchester City
1-0 Bryan Mbeumo ('65 )
2-0 Patrick Dorgu ('76 )
Það var draumabyrjun fyrir Michael Carrick sem tók við sem bráðabirgðastjóri Man Utd á dögunum. Liðið fékk granna sína í Man Utd í heimsókn.

Harry Maguire var hársbreidd frá því að koma Man Utd yfir snemma leiks en hann skallaði boltann í slána af stuttu færi.

Það var umdeildur dómur eftir tíu mínútna leik þegar Diogo Dalot braut á Jeremy Doku, einhverjir vildu sjá rautt spjald fara á loft en gult spjald var niðurstaðan.

Man Utd var mun betri aðilinn í fyrri hálfleik en tvö mörk voru dæmd af þeim rauðklæddu. Fyrst komst Amad Diallo framhjá Gianluigi Donnarumma og stuttu síðar skoraði Bruno Fernandes en þeir voru báðir rangstæðir.

Man City náði að setja boltann á markið í fyrsta sinn í leiknum þegar tæpar tíu mínútur voru til loka fyrri hálfleiksins. Varnarmaðurinn ungi, Max Alleyne átti skalla að marki en Dalot bjargaði á síðustu stundu.

Erling Haaland meiddist undir lok fyrri hálfleiks en hann entist í 80 mínútur. NIco O'Reilly og Rayan Cherki komu inn á í hálfleik fyrir Alleyne og Phil Foden.

Haaland komst í góða stöðu snemma í seinni hálfleik en Lisandro Martinez gerði virkilega vel að komast fyrir skotið. Donnarumma var í stuði í seinni hálfleik en hann varði stórkostlega í tvígang. Fyrst frá Casemiro og stuttu síðar frá Bryan Mbeumo.

Man Utd komst í skyndisókn eftir rúmlega klukkutíma leik, Fernandes sendi Bryan Mbeumo í gegn og hann sigraði loksins Donnarumma og kom Man Utd yfir.

Tíu mínútum síðar átti Matheus Cunha fyrirgjöf og Patrick Dorgu réðst á boltann og skoraði, stöngin inn. Þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma gat Amad Diallo innsiglað sigurinn en skaut í stöngina.

Mason Mount kom inn á sem varamaður undir lokin og hann skoraði með sinni fyrstu snertingu. Markið var hins vegar dæmt af vegna rangstöðu, það kom ekki að sök því sigur Man Utd var í höfn. Man City sá aldrei til sólar.

Stórkostleg frumraun Michael Carrick og Man Utd er komið með 35 stig og fór upp fyrir Liverpool í 4. sæti. Man City er í 2. sæti með 43 stig en Arsenal getur náð níu stiga forystu með sigri á Nottingham Forest í kvöld.
England: Man Utd fór illa með Man City
Canon

Mynd: EPA

England: Man Utd fór illa með Man City
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.