17.02.05 - 23:07
Simon Karkov til Leiknis (Staðfest)

Simon Karkov og Arnar Einarsson formaður Leiknis fyrr í kvöld

Mynd: Leiknir.com

Leiknismenn hafa heldur betur fengið góðan liðsstyrk en danski miðvallarleikmaðurinn Simon Karkov er genginn til liðs við Breiðholtsliðið. Karkov lék eins og kunnugt er með FH síðasta sumar og varð Íslandsmeistari með liðinu.
Karkov spilaði 8 leiki með FH en fékk samning sinn ekki endurnýjaðan hjá félaginu. Hann verður 29 ára í ár og hefur leikið með Herfölge og Esbjerg í úrvalsdeildinni í Danmörku en Simon lék einnig með hollenska úrvalsdeildarliðinu Heerenveen um tíma.
Stóð til að hann myndi spila sinn fyrsta leik í gærkvöldi þegar Leiknir spilaði æfingaleik við Gróttu en vegna seinkunar á flugi náði hann ekki leiknum í tæka tíð. Hann æfði með liðsfélögum sínum í fyrsta skipti í kvöld og þá var samningurinn einnig undirritaður.
Simon spilaði sinn fyrsta leik með meistaraflokki 16 ára með Esbjerg. Hann hefur leikið 3 U-15 leiki, 13 U-16 leiki og 16 U-18 landsleiki fyrir Danmörku.
1992 hlaut hann Arla Talentpris verðlaunin en Arla veitir á hverju ári viðurkenningu til þess leikmanns sem þykir hafa skarað frammúr í yngri landsliðum. Ýmsir þekktir knattspyrnumenn hafa fengið þessi verðlaun, þar á meðal eru: Jesper Grønkjær (Atl.Madrid), Ulrik Laursen (Celtic) og Jon Dahl Tomasson (AC Milan).
Sjá einnig:
Hin hliðin á Simoni Karkov
Upplýsingar fengnar af heimasíðu Leiknis, Leiknir.com