Helgi Snær Agnarsson er genginn til liðs við Fjölni. Hann kemur til félagsins eftir að hafa spilað með KFG síðasta sumar.
Hann þekkir vel til hjá Fjölni, hefur bæði spilað með Fjölni og venslaliðinu Vængjum Júpíters. Hann varð bikarmeistari með 2. flokki Fjölnis 2018 og vann 4. deildina með Vængjum 2023.
Hann þekkir vel til hjá Fjölni, hefur bæði spilað með Fjölni og venslaliðinu Vængjum Júpíters. Hann varð bikarmeistari með 2. flokki Fjölnis 2018 og vann 4. deildina með Vængjum 2023.
„Ég er spenntur fyrir sumrinu í Grafarvoginu, það er frábært að vera kominn aftur í góða aðstöðu, samheldinn leikmannahóp og félag með skýr markmið. Ég mun leggja allt mitt að mörkum til að koma félaginu aftur í næstefstu deild og verkefninu er ekki lokið þar, því félagið á mikið inni. Grafarvogurinn verður gulur og glaður í sumar," er haft eftir Helga Snæ í tilkynningu félagsins.
Helgi Snær, sem er fæddur árið 1999, er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum. Helgi Snær hefur leikið alls 45 leiki í 1. deild með Fjölni, Þrótti Vogum og Magna. Þá á hann einnig um 45 leiki í 2. deild með ÍR og KFG. Hann er upplainn hjá Stjörnunni og var hluta af árinu 2021 spilandi þjálfari Einherja.
„Fjölnir býður Helga Snæ velkominn aftur til félagsins og hlakkar til samstarfsins á komandi tímabili. Áfram Fjölnir!" segir í tilkynningu Fjölnis.
Athugasemdir


