Jude Bellingham hefur ekki átt sjö dagana sæla á þessu tímabili. Hann hefur átt í erfiðleikum með meiðsli, verið gagnrýndur af stuðningsmönnum og var sagður hafa átt þátt í því að Xabi Alonso var rekinn sem þjálfari Real Madrid.
Bellingham svaraði fyrir það síðastnefnda og sagði það algjört rugl.
Bellingham svaraði fyrir það síðastnefnda og sagði það algjört rugl.
Núna er mikið rætt og skrifað um að Jurgen Klopp verði næsti stjóri Real Madrid, hann taki við liðinu í sumar. Í kjölfarið hafa spænskir fjölmiðlar fjallað um það að Klopp vilji ekki hafa Bellingham, sem er einn besti miðjumaður í heimi, í sínu liði og hann henti ekki hans hugsjón. Það er athyglisvert í ljósi þess að Bellingham var sterklega orðaður við Liverpool, þar sem Klopp var stjóri, áður en hann fór til Real Madrid.
El Nacional á Spáni gengur svo langt að segja að Bellingham sé búinn að samþykkja að ganga í raðir Manchester United ef Klopp tekur við Real Madrid.
„Þetta veltur eingöngu á því ef Klopp mætir. Ef þýski stjórinn mætir ekki til leiks á Santiago Bernabeu, þá ætlar miðjumaðurinn að vera áfram hjá félaginu," segir í greininni.
Man Utd var nálægt því að fá Bellingham áður en hann fór til Borussia Dortmund fyrir nokkrum árum síðan.
Athugasemdir

