Það er krísa í Kaupmannahöfn þessa stundina. FC Kaupmannahöfn, sem hefur verið stærsta félag Danmerkur í fjöldamörg ár, er í hættu á því að vera í neðri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar þegar hún skiptist í byrjun næsta mánaðar.
FC Kaupmannahöfn hefur tapað fjórum deildarleikjum í röð - sem er í raun ótrúlegt - og liðið situr í sjöunda sæti. Eftir tvær umferðir skiptist deildin í tvo hluta, líkt og er gert hér á Íslandi í Bestu deildinni. FCK er í alvöru hættu á að vera í neðri hlutanum og vonin um að vinna danska meistaratitilinn er í buskanum.

Michel Wikkelsø Davidsen, ritstjóri Bold, skrifar í dag áhugaverðan pistil þar sem hann segir þetta mestu krísuna hjá FCK í mörg, mörg ár og Midtjylland, sem hafa verið helstu keppinautar Kaupmannahafnarfélagsins síðustu ár, sé að hóta því að taka yfir.
Ritstjórinn segir viðvörunabjöllur hringja hátt hjá FCK og skellir hann skuldinni á Sune Smith-Nielsen, yfirmann fótboltamála, og Jacob Neestrup, þjálfara liðsins - þó aðallega á þann fyrrnefnda.
„Örin beinist líka að stjórninni en þá bara fyrir að ráða Smith-Nielsen til að sjá um fótboltalegar ákvarðanir. Það er ekki peningaflæðið sem er vandamálið," skrifar Davidsen.
FCK er með mesta fjármagnið í dönskum fótbolta þó Midtjylland sé alltaf að færast nær og nær. Í pistlinum á Bold er fjallað um að vandamálið sé hvert peningurinn hefur farið. Til að mynda hefur miklum fjármunum verið eytt í gömlu vonarstjörnuna Youssoufa Moukoko sem hefur ekkert getað. Viktor Bjarki Daðason, ungi Íslendingurinn, hefur sýnt talsvert meira á þeim mínútum sem hann hefur fengið.
Davidsen nefnir fleiri leikmenn sem hafa kostað mikla peninga og skilað litlu eða verið óstöðugir. Spjótin beinast að Smith-Nielsen og Neestrup og það verða svo sannarlega læti ef FCK verður í neðri hlutanum eftir tvær umferðir.
Athugasemdir