Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   þri 17. febrúar 2026 16:00
Elvar Geir Magnússon
Rooney segir Slot ekki með áruna til að vera stjóri Liverpool
Mynd: EPA
Wayne Rooney hefur verið duglegur við að segja sínar skoðanir á hinum ýmsu málum að undanförnu og nú hefur hann hirt fyrirsagnirnar með því að segja að Arne Slot sé ekki með áruna til að vera stjóri Liverpool.

Eftir að hafa stýrt Liverpool til meistaratitilsins á síðasta tímabili er liðið nú í sjötta sætinu, fimmtán stigum frá toppliði Arsenal.

Rooney segir að Slot skorti útgeislun sé miðað við forvera hans, Jurgen Klopp.

„Ég hef hitt Slot nokkrum sinnum en ég tel að hann sé ekki með áruna til að vera stjóri Liverpool. Kannski er það vegna þess að Jurgen Klopp var á undan honum. Það er erfitt fyrir hvern sem er að koma á eftir honum en ég held að honum skorti útgeislun," segir Rooney.

Rætt hefur verið um hvort Slot verði áfram stjóri Liverpool á næsta tímabili.

„Ef hann kemur liðinu ekki í topp fimm í deildinni þá verður hann látinn fara, ég held að það sé ljóst. Það er auðvitað klikkað að segja þetta þegar hann er nýbúinn að vinna ensku úrvalsdeildina," segir Rooney.


Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
Athugasemdir
banner
banner