Fotbolti.net
17.02.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Selma Scheving og Birna skrifa undir hjá Gróttu (Staðfest)

Selma Scheving og Birna skrifa undir hjá Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Grótta

Hertz
Birna Hrólfsdóttir og Selma Dís Scheving hafa skrifað undir samning við Gróttu.
Tilkynning Gróttu

Birna Hrólfsdóttir skrifaði undir samning við knattspyrnudeild Gróttu á dögunum. Ferill Birnu er óvanalegur en hún hafði lítinn fótbolta spilað síðustu ár þar til hún byrjaði að mæta á æfingar hjá “Gellubolta” í Gróttu fyrir u.þ.b. ári síðan. Hún lék með U20 liði Gróttu síðasta sumar og vakti athygli þjálfara meistaraflokks kvenna. Birna, sem verður 25 ára á árinu, hóf æfingar með meistaraflokki í haust, er komin á fljúgandi siglingu og það verður gaman að fylgjast með henni í sumar. Birna er alin upp í Svíþjóð og Garðabæ þar sem hún lék með Stjörnunni upp yngri flokkana. Hún hefur komið sterk inn í Gróttuliðið og skoraði tvennu í 4-4 jafntefli gegn ÍA um helgina.

Selma Dís Scheving skrifaði á dögunum undir sinn fyrsta samning hjá knattspyrnudeild Gróttu. Selma kom til Gróttu síðasta sumar frá KH.

Selma er 19 ára gömul og er uppalinn Valsari. Hún hefur leikið 28 leiki í 2. deild með KH og KR og í sumar kom hún við sögu í einum leik með Gróttu. Því miður lenti Selma í vondum meiðslum fyrir nokkrum vikum og vonandi gengur endurhæfing hjá henni sem best.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.