Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   þri 17. febrúar 2026 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Völsungur fær einn frá grönnunum og annar færist nær
Lengjudeildin
Juan Guardia
Juan Guardia
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Javon Jerrod Sample er genginn til liðs við Völsung. Sample er frá Trínidad og Tóbago en hann kom til Einherja á Vopnafirði árið 2019.

Hann fór þaðan í Dalvík/Reyni en hann hefur einnig spilað með KF og Hömrunum.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Juan Guardia á leiðinni aftur til Völsungs en hann spilaði með Þór þegar liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni síðasta sumar.

Hann er 23 ára gamall Spánverji. Hann kom fyrst hingað til lands til að spila með Völsungi árið 2023. Hann spilaði 39 leiki fyrir liðið í 2. deild áður en hann gekk til liðs við Þór fyrir síðasta tímabil. Hann kom við sögu í 16 leikjum þegar Þór stóð uppi sem sigurvegari í Lengjudeildinni.
Athugasemdir
banner
banner