Fotbolti.net
17.03.06 - 16:46
Magnús Már Einarsson

Andri Hjörvar í Fjarðabyggð (Staðfest)

Andri Hjörvar í Fjarðabyggð (Staðfest)
Canon

Mynd: Sport.is

Varnarmaðurinn Andri Hjövar Albertsson úr Grindavík hefur gengið til liðs við Fjarðabyggð úr annarri deild en þetta kemur fram á heimasíðu síðarnefnda liðsins.
Andri sem er 25 ára miðvörður lék sex leiki í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar en hann kom til Grindvíkinga fyrir síðustu leiktíð frá Þór þar sem hann hefur leikið mest allan sinn feril.

Hjá Þórsurum hefur Andri leikið fjölda leikja í fyrstu og annarri deild sem og átta leiki í efstu deild árið 2002 en hann er þegar kominn með leikheimild hjá Fjarðabyggð og getur hann því leikið með liðinu gegn Hetti í deildabikarnum í lok mánaðarins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.